Samningur um leikskólavist
Við upphaf dvalar er gerður samningur um leikskólavist. Þar kemur fram dvalartími barnanna og ber foreldrum að virða umsaminn dvalartíma.

Leikskólagjöld
Leikskólagjöldin eru innheimt með gíróseðlum eða í gegnum greiðsluþjónustu bankanna. Greitt er fyrirfram og er eindagi 10. hvers mánaðar. Skuldi foreldrar 3 mánuði eða meira verður vistunarsamningi sagt upp af hálfu Garðabæjar. Veittur er 25% systkinaafsláttur í alla vistunartíma.

Uppsagnarfrestur
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á leikskólavist er einn mánuður og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar. Segja þarf upp dvalarsamningi skriflega hjá deildarstjóra.

Sumarleyfi
Lágmarksleyfi fyrir barnið eru fjórar vikur samfellt sem eru án gjalds. Beiðni um val á sumarleyfi þarf að berast fyrir 1. apríl ár hvert þannig að allir geti fengið þann tíma sem þeir óska eftir.

Hér komum við til með að setja fram ýmsar hagnýtar upplýsingar.

Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi