Foreldrar
Foreldrafélag leikskólans Hæðarbóls var stofnað árið 1994.
Félagið er öflugt og einbeitir sér að því að styðja við leikskólastarfið á jákvæðan hátt.
Félagið hefur auðgað menningarlíf skólans með því að bjóða upp á leiksýningar fyrir börnin, danskennslu, tónlistarkennslu o.þ.h. ásamt því að vera vettvangur foreldra fyrir skoðanaskipti um leikskólastarfið. Það býður einnig upp á sveitarferð fyrir börnin, systkini þeirra og foreldra á vorin. Síðustu ár hefur verið farið að Grjóteyri í Kjós.
Formaður foreldrafélagsins er Lovísa A. Pálmadóttir. Aðrir nefndarmenn eru Anna Linda Bjarnadóttir, Halla Árnadóttir (gjaldkeri), Helga Margrét Pálmadóttir, Ingibjörg Sigfúsdóttir og Steinunn Jónasdóttir.
Hafirðu ábendingar um starf foreldrafélagsins er hægt að senda póst á foreldrafelag@haedarbol.is.