Skólinn
Leikskólinn Hæðarból tók til starfa 1.mars 1991 og er hann ætlaður börnum á aldrinum 18 mánaða - 6 ára.
Leikskólinn opnar klukkan 7.30 og lokar klukkan 17.00. Boðið er upp á sveigjanlegan dvalartíma.
Gæðakerfi
Í leikskólum Garðabæjar er unnið að gerð gæðakerfis sem byggir á sameiginlegri ákvörðun um vinnubrögð og starfshætti. Markmið gæðakerfisins er að ná fram markvissari vinnubrögðum og þar með betra starfi. Gæðastefnur eru mótaðar og unnið er að námskrárgerð fyrir hvern skóla í samræmi við aðalnámskrá leikskóla. Gæðakerfið er í sífelldri enduskðun.
Gæðastefna Hæðarbóls
Áhersla er lögð á jákvætt og gott samstarf við foreldra barnanna
Áhersla er lögð á öryggi og festu, ákveðið skipulag og hrynjanda í daglegu starfi, að börnunum líði vel, finni tl öryggis og viti að hverju þau ganga
Áhersla er lögð á vellíðan barnanna, virkni, sköpun og tjáningu, að börnin fái að spreyta sig og ná færni
Áhersla er lögð á að tekið sé mið af þroska og komið til móts við leikþörf barnanna
Áhersla er lögð á að öll börn, jafn fötluð sem ófötluð fái notið sín í leikskólanum
Áhersla er lögð á að nýta þekkingu og færni starfsmanna í að virkja börnin í sköpun og tjáningu
Áhersla er lögð á að uppeldisstarfið feli í sér alla þætti leikskólastarfsins.