Námsspil
Spil og leikir eru samofnir leikskólastarfi. Það að spila saman er vettvangur þess að efla með sér jafnrétti og lýðræðisvitund og læra sameiginlega að virða hvert annað í regluverki leiksins.
í vinnustundum er yfirmarkmiðið að;
- hafa gaman saman
- börnin efli orðaforða, málvitund og talnaskilning
- börnin efli hlustun og biðlund
- börnin efli boðskiptafærni
Skipulagðar vinnustundir með margskonar námsspil eru í 10 vikur í senn, á haustönn og vorönn.