Sérkennsla
Ef foreldrar eða starfsmenn leikskólans telja að um frávik í þroska barns sé að ræða, er leitað til sérfræðinga í samvinnu við foreldra.
Sérkennslufulltrúi sinnir ráðgjöf við starfsmenn leikskóla og foreldra vegna barna með sérþarfir.
Leikskólaráðgjafi er: Margrét Þórarinsdóttir sími: 5258529
Sálfræðingur veitir leikskólakennurum og foreldrum leikskólabarna sálfræðilega ráðgjöf þegar þess er óskað.
Sálfræðingur er: Trausti Valsson sími: 5258543
Talmeinafræðingur greinir börn sem eiga í málfarslegum erfiðleikum og sinnir ráðgjöf við starfsmenn leikskóla og foreldra barnanna sé þess óskað. Talmeinafræðingur leggur skimun fyrir elstu börnin að hausti.
Talmeinafræðingur er: Gréta sími 5258546